Á bóndadag voru miklar fjarvistir bæði á starfsfólki og börnum og því var Þorragleði leikskólans frestað til föstudagsins 4.febrúar. Söngsalur var tvískiptur í eldri og yngri og flæði um mismunandi svæði einnig tvískipt. Ekki var tekin nein áhætta á að blanda hópunum of mikið saman vegna Covid.
Sungin voru hefðbundin Þorralög, börnin smökkuðu þorramat í hádeginu og skemmtilegir leikir um allt hús.