Leikskólagjöldin eru greidd mánaðarlega og er sérstakt gjald í foreldrasjóð inni í gjöldunum. Greidd eru leikskólagjöld 11 mánuði á ári og er júlí mánuður ávallt gjaldfrír nema ef börnin eru að hætta og fara í grunnskóla.
Á heimasíðu Garðabæjar er að finna gjaldskrá fyrir leikskóla
Við viljum vekja athygli á því að þeir sem telja sig eiga rétt á afslætti á leikskólagjöldum, hvort heldur það er systkinaafsláttur, námsmannaafsláttur eða afsláttur fyrir einstæða foreldra þurfa að sækja um það sérstaklega á mínum síðum hjá Garðabæ.