Skv. lögum um leikskóla nr. 90 frá 2008 skal í leikskólum vera starfrækt foreldraráð og leikskólastjóri hefur frumkvæði að stofnun þess og kosningu í ráðið. Foreldraráð er skipað a.m.k. þremur foreldrum og skal kosning fara fram í september ár hvert og kosið til eins árs í senn. Ráðið setur sér starfsreglur sem það vinnur eftir og ber leikskólastjóra að vinna með ráðinu. Hlutverk foreldraráðs leikskóla er eftirfarandi:
- Gefa umsagnir til leikskóla og leikskólanefndar um skólanámskrá og aðrar áætlanir er varða starfsemi leikskólans
- Fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum
- Hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfi
Hér má finna nánari lýsingu á starfsháttum foreldraráðs.
upplýsingar um starfshætti foreldraráða.pdf
Handbók foreldraráða í leikskólum(1).pdf
Í foreldraráði skólaárið 2021-2022 eru :
Ása Jacobsen asajacobsen89@gmail.com
Harpa Þrastardóttir harpa.thrastardottir@colas.is
Bjarney Anna Bjarnadóttir bjarneyanna@gmail.com
Umsögn foreldraráðs um starfsáætlanir:
umsögn um starfsáætlun 2019 - 2020.pdf
Fundargerðir:
fundargerð foreldraráðs 17.mars 2022pdf