Karellen
news

Fréttabréf desembermánaðar - á döfinni

30. 11. 2018

Nú gengur aðventan í garð og jólaundirbúningur í leikskólanum eins og víða en hefðbundið hópastarf fer í jólafrí. Á aðventunni læra börnin ljóðið Aðventa, eitt erindi í hverri viku sem er síðan sungið í sameiginlegri söngstund í sal á föstudögum um leið og kveikt er á kertunum á aðventukransinum. Jólasögur og söngvar leggja sinn ljúfa blæ yfir mánuðinn og lögð verður áhersla á að draga úr þeirri spennu sem jólamánuðurinn getur valdið. Ýmsir viðburðir eru framundan og gott að hafa þetta allt saman í dagatalinu. Leikskólinn verður lokaður á aðfangadag 24.des., jóladag 25.des., annan í jólum 26. des., gamlársdag 31. des og á nýársdag 1.jan.Vinsamlegast látið okkur vita ef börnin verða í aukafríi á milli jóla og nýars, þetta árið eru eingöngu tveir dagar þarna á milli.

Laugardagur 1. des - Piparkökuskreytingar á Bæjarbóli Foreldrafélagið býður upp á piparkökuskreytingar fyrir börn og foreldra kl. 13:30 – 15:30. Rölt verður saman á Garðatorg rétt fyrir kl. 16:00 þar sem tendruð verða ljósin á jólatrénu.

Aðventuhátíð: miðvikudaginn 5. desember kl. 9:30 verður helgistund í Vídalínskirkju, sóknarprestar taka á móti börnunum. Í helgistundina fara öll börn fædd 2013, 2014 og 2015. Það verður lagt af stað gangandi frá Bæjarbóli kl. 9:00. Yngri börnin fædd 2016 og 2017 eiga saman notalega stund í leikskólanum.

Foreldraheimsókn á aðventunni: Miðvikudaginn 5. desember kl. 15:00 - 16:00 er foreldrum boðið að koma í jólaheimsókn, þiggja kaffisopa og smákökur sem börnin hafa bakað og kynnast jólaundirbúningi í leikskólanum.

Rauður dagur: Föstudaginn 7. desember ætlum við að hafa rauðan dag og þá mætum við í einhverju rauðu og syngjum saman jólalög í aðventustund í salnum.

Fyrsti jólasveinninn kemur til byggða aðfaranótt 12.desember þannig að skórinn fer í gluggann á þriðjudagskvöldi þann 11.desember.

Jólagleði-jólaball: Fimmtudagur 13. desember jólagleði í leikskólanum.
kl. 9.30 til 10:30 verður dansað í kringum jólatréð og jólasveinar koma í heimsókn.
kl. 11:30 og 12:00 Jólamatur, lambalæri með tilheyrandi meðlæti og ís í eftirmat.

jólaleikritið "jólasaga Skröggs".Leikritið fjallar um jólaálf sem hittir Skrögg gamla og þykir leiðinlegt að sjá hversu fúll og einmana hann er. Jólaálfurinn ákveður því að taka ráðin í sínar hendur.

© 2016 - 2024 Karellen