Karellen
news

September fréttir

05. 09. 2018

Ágúst og september eru mánuðir mikilla breytinga í leikskólanum, börn færast á milli skólastiga og á milli deilda og ný börn hefja nám sitt á Bæjarbóli.

Við röðum starfsmönnum í samræmi við vistunartíma barna og viljum því ítreka mikilvægi þess að foreldrar virði þann vistunartíma sem keyptur er. Þó að barn komi seint að morgni þá er sá tími sem ákveðinn er í samningi það sem gildir og barnið þarf að koma og fara innan þeirra tímamarka. Okkur munar um það ef nokkur börn eru sótt of seint þar sem hluti starfsmanna er jafnvel búinn að ljúka sínum vinnudegi. Einnig viljum við benda á að hafa alltaf nægan fatnað með börnunum í leikskólann, bæði hlýjan útifatnað og aukaföt í körfum.

Þeir sem eiga eftir að sækja sér Karellen appið í símann endilega gerið það. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu leikskólans www.baejarbol.leikskolinn.is en þar er einnig hægt að virkja foreldraaðgang. Ef þetta er óskýrt endilega fáið aðstoð hjá starfsfólki.

Gott foreldarsamstarf er okkur mjög mikilvægt og við óskum eftir áhugasömu fólki til að bætast í hóp bæði foreldrafélags og foreldraráðs. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við mig. Markvisst vetrarstarf hefst í lok september og boðið verður upp á foreldasamtöl á haustönn eða um miðjan október og verður það auglýst síðar.

Við vonumst eftir að eiga gott samstarf í vetur. Hér eru svo nokkrir viðburðir sem eru á döfinni í september:

Föstudagur 7. september – söngsalur, syngjum saman í salnum. Þóranna sér um söngsal.

Mánudagur 10. september – slökkviliðið heimsækir elstu börnin og fræðir um eldvarnir.

Mánudagur 17. september – skipulagsdagur og leikskólinn lokaður.

Mánudagur 24. september – Markvisst vetrarstarf hefst.

Miðvikud.26. september – Evrópski tungumáladagurinn.

Föstudagur 28. september – Leikfangadagur – börnin mega koma með leikfang að heiman.


© 2016 - 2024 Karellen