Fyrir páskana var skemmtilegur páskaeggjaleikur á lóð leikskólans. Búið var að fela mörg lítil pappírspáskaegg á víð og dreif um leikvöllinn. Börnin leituðu svo að eggjunum, hlupu um, teygðu sig og klifruðu til að ná sem flestum eggjum. Skemmtileg hreyfing, útivera og verkefni.