Karellen
news

Jólaleikrit - Pönnukakan hennar Grýlu

18. 12. 2019

Bernd Ogrodnik brúðuleikari kom í leikskólann og flutti fyrir börnin skemmtilega og fallega jólasögu sem er unnin upp úr evrópskri þjóðsögu. Í leikritinu nýtur hann aðstoðar hrífandi leikbrúða sem unnar eru úr tré, lifandi tónlistar og virkrar þátttöku áhorfenda.

Sagan segir frá hugvitsamri pönnuköku sem nær að flýja steikarpönnu Grýlu með það fyrir augum að ferðast alla leið í arma Jesú litla og foreldra hans sem dvelja svöng og köld í fjárhúsi í Betlehem. En á vegi hennar verða margir sem vilja sinn skerf af kökunni.


© 2016 - 2024 Karellen