Karellen
news

Hressandi íþróttadagur

06. 06. 2018

Í dag höfðum við íþróttadag í útiveru í garðinum. Settar voru upp nokkrar stöðvar t.d þrautabraut, fallhlíf, hjólabraut, boltaþraut og húlahringir. Latabæjartónlist ómaði undir og sumir voru andlitsmálaðir með íslensku fánalitunum. Gunnhildur leiddi nokkrar hópæfingar sem gengu vel en nokkrir starfsmenn og börn gera planka æfingu á hverjum degi í plankaáskorun júnímánaðar.


Börnin á Vinaholti og Hraunholti fóru jafnframt í gönguferð.

Mikil útivera og hreyfing í góðu veðri :)




© 2016 - 2024 Karellen