Leikskólastarf er heldur betur fjölbreytt og skemmtilegt þessa dagana. Veðurfarið leikur ef til vill ekki við okkur en það breytir því ekki að næg verkefni eru fyrir hendi alla daga og hversdagsleikinn brotinn upp með ýmsum hætti.
Á Bæjarbóli eru börnin búin að vera í danskennslu undanfarnar vikur og njóta sín ótrúlega vel í dansinum. Danskennslan er í boði foreldrafélagsins sem styrkir okkur til margra góðra hluta. Dagný Björk danskennari er alger snillingur með börnin og taka þau flest mikinn og virkann þátt.
Embætti landlæknis og Tannlæknafélag Íslands stóðu fyrir tannverndarviku 29. janúar-2. febrúar. Við á Bæjarbóli erum svo heppin að móðir í foreldrahópnum er tannlæknir og kom hún og fræddi börnin um tannheilsu ásamt því að færa öllum börnum leikskólans tannbursta að gjöf. Börnin gerðu ýmis verkefni í tengslum við tennur og voru alsæl með nýju tannburstana sína. Þau enduðu svo vikuna á því að horfa á leikritið um Karíus og Baktus.
Segja má að Öskudagur sé hápunktur gleðinnar í febrúar en þá mættu börn og starfsfólk skrautlega til fara í fjölbreyttum búningum í leikskólann og skemmtu sér saman. Dagný Björk danskennari stýrði balli í salnum, kötturinn var sleginn úr tunnunni og pizzuveisla í hádeginu. Þá má því með sanni segja að nóg sé um að vera á Bæjarbóli, alltaf líf og fjör.